Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Kveðja

Sjáið tönnsluna mína

Bara svona rétt að kveðja að sinni en vikufrí í Húsafelli er framundan. Ég er búin að fylla gám af "nauðsynlegum" hlutum fyrir barnið og er hann nú á leiðinni í Húsafell Hmm já eða þannig.  Á maður ekki bara von á brjáluðum mótmælendum sem hanga á þakinu hjá manni og heimta að maður spari rafmagn og noti umhverfisvænar bleyjur??  Þeir kannski handjárna sig við skiptitöskuna mína...

Skelli hér inn nokkrum myndum af nýju tönnslunni hjá Emmu Lilju og einnig af galvöskum mæðgum sem fóru í göngutúr um daginn og sumir héldu það ekki alveg vakandi út.

Hafið það gott á meðan við sólum okkur í hitanum í Húsafelli....  


Fleiri myndir

Emma Lilja (5 mánaða) í blóma

Hvar eeeer ég núna mamma?

Jæja, þá er stúlkan orðin þetta gömul, mikið svakalega líður tíminn hratt.  Ef ég hefði bara tekið sex mánaða fæðingarorlof þá væri ég alveg að fara að vinna aftur, þvílíkur hrollur..... Gæti ekki hugsað mér að skilja hana eftir svona litla.  Jæja þarf víst ekki að hugsa um það í bili.    En hvað um það, nú liggur fyrir að fara í Húsafell í bústað á föstudaginn og vera í viku og þá er ég bara með á heilanum allt sem ég á eftir að gleyma.  Ég hef aldrei farið svona lengi með hana í ferðalag og býst við að ég eigi eftir að tæma allar fataskúffurnar hennar til að taka örugglega nóg með.  Já og baðherbergið verður víst tæmt líka.  Hmmm kannski ég fái bara Samskip til að senda gám með okkur, ætli það bjargi ekki bara málunum?  

Læt fylgja með myndir úr ungbarnasundinu góða og skemmtilega sem við urðum að draga okkur í hlé frá eftir tvo tíma þar sem fór að kræla á eyrnabólgu.  Held samt að ég verði að draga stúlkuna með mér aftur af stað fljótlega, þetta var svo hrikalega gaman og hún hefur svo gott af æfingunum sem gerðar eru.  Ef eyrnabólgan tekur sig upp aftur þá játa ég mig sigraða. 


Fleiri myndir

Fyrirsætan Emma

Emma og bubblurnar

Við erum svo heppin að eiga vinapar sem heita Jonni og Halla.  Fyrir utan það hvað þau eru nú gott fólk og gaman að þekkja, þá er Jonni mikill ljósmyndari og var til í að ljósmynda Rósarimafrumburðinn.  Við prófuðum okkur aðeins áfram og hér fylgja nokkur sýnishorn frá þessum snilling.  Til stendur svo að halda myndatökum áfram fljótlega og er þá þemað Rósarimafjölskyldan.  Sjáum til hvernig tekst til með það....

 

 p.s. Halla, þetta var Cate Blanchett sem við sáum á Laugaveginum á laugardag.....  Veiiiiii hvað við erum frægar


Fleiri myndir

Allt að gerast

Veiiii gaman

Jæja, það er aldeilis bloggletin á þessum bæ. Það er svona þegar kemur smá gott veður þá bara er maður skyldugur til að vera úti og gera eitthvað skemmtilegt og hafa gaman.  og þá er lítið bloggað...  Reyndar gerðust þau stórtíðindi um daginn að fyrsta tönnin hennar Emmu Lilju braust í gegnum tannholdið.  Sem betur fer fylgdi þessu engin grátur eða kvart, bara bros og hjal.  Nú verður maður víst að fara að rækta sigg á geirvörtunni til að byrgja sig gagnvart framtíðarbitum lítilla hvassra tanna...   Einnig er stúlkan búin að vera svaka dugleg að æfa vagg og veltu á leikteppinu sínu, hún er alveg að ná þessu og þurfa nú foreldrarnir að passa sig að skilja litla krílið hvergi eitt eftir þar sem hægt er að velta sér niður á gólf.  Þeir dagar eru víst liðnir þar sem stúlkan broshýra lá bara róleg og beið í þeirri stellingu sem hún var lögð niður í, eftir hverju sem vera vildi.

Við foreldrarnir nýbökuðu prófuðum líka eitt í gær í fyrsta skipti og það var að fara bæði út í einu að kvöldi til með ekkert barn.  Við bara skelltum okkur í bíó með vinum og amma Heiða var svo góð að passa Emmu Lilju á meðan.  Reyndar kom það mér á óvart að Dóri var alveg stressaðri yfir þessu en ég en auðvitað var þetta ekkert mál og við áttum bara indælis kvöldstund og hver veit nema maður bara geri þetta aftur. Passið ykkur nú ættingjar, nú linnir ekki barnapössunarbeiðnum....   Annars veit ég ekki af hverju það lenti svo að fyrsta pössunin á sér stað svona seint, Emma Lilja er orðin alveg fjögurra og hálfsmánaða gömul.  Við erum ekkert paranoid foreldrar eða þannig. Ég hef alveg farið og hitt vinkonur á kvöldin en þá hef ég bara tekið Emmu með.  Þetta kemur út eins og maður sé orðin alveg steingeldur og leiðinlegur og vilji bara vera heima alla daga og öll kvöld að lesa uppeldisbækur og strauja barnaföt. 

Róleg verslunarmannahelgi framundan, dagurinn í dag verður í faðmi vinahóps Dóra og á morgun líklega á Þingvöllum í heimsókn hjá Önnu Lilju og Ella.  Get ekki sagt að mig langi að vera dauðadrukkin í tjaldi á þjóðhátíð.  Sem betur fer eru þeir dagar í mínu lífi liðnir að maður hafi gaman að slíku.  Hmm en ef um væri að ræða sumarbústað, Irish Coffee eða rauðvín og heitan pott þá værum við alveg að tala saman. 


Óvænt tíðindi

Erla og Bjarki

Á síðasta laugardag héldum við Emma Lilja á Skagann til að samfagna litlu frænkum mínum, þeim Sunnu og Ástrósu sem héldu upp á afmæli sín saman.  Öll familían var samankomin og beið maður óþolinmóður eftir að komast í kökurnar þegar séra Eðvarð Ingólfsson stígur fram í fullum skrúða og hjónavígsla Erlu systur og Bjarka hefst.  Þar sem þau eru búin að vera saman í heil tólf (12) ár þá hefði þetta kannski ekki átt að koma á óvart en það gerði það samt svo sannarlega....  Það tók fólk nokkra stund að loka opnum munnum og fatta hvað var í gangi en þetta var bara dásamlega gaman og þá eru bara báðar systur mínar giftar með tveggja mánaða millibili.   Sem betur fer fáum við Dóri alveg séns, þ.e. við erum svo ný í þessu málum að við eigum alveg inni þó nokkur ár áður en við þurfum að fara að huga að þessu.  Eða er það ekki?

Þá er Emma Lilja búin að fara í fjögur brúðkaup, tvær fermingar, útskriftarveislu, ættarmót, og um það bil 50 afmæli á sínum rúma fjögurra mánaða ferli. 


Fleiri myndir

Sumarskrepp

Sólað sig í sumarbústað

MMMMM, þetta er búið að vera svo yndislegt í þessari sól sem maður var hættur að trúa á.  Svo heppilega vildi til að Dóri var í fríi síðustu viku og vorum við svo heppin að fá að dvelja í sumarbústað fjölskyldu hans í Kjósinni í Hvalfirði.  Þar var gert allt sem tilheyrir slíkri vist og við bættist svo nætursjónvarspgláp á hann Magna í Rockstar. Mikið ofsalega er þetta gaman.  Mér fannst næstum eins og ég væri stolt móðir þegar hann fékk að taka aukalag í vikunni.   Spádómsinnsæi mitt sér fram á fleiri næturvökur á miðvikudags og fimmtudagsnóttum í bráð.

En sem sagt, stúlkan litla sem var með smá eyrnabólgu og er því í fríi frá ungbarnasundi, fékk líka mikið kvef og var því frussað smá vessum í bústaðnum. En þetta er allt á góðri leið og vafalaust hefur sólin hjálpað til að þurrka upp svona óþarfa vessaframleiðslu.  Nokkrar myndir fylgja. 


Fleiri myndir

AMMMMMLI

Með Ástrósu frænku

  Í dag er litla dóttir mín orðin fjögurra mánaða gömul.   Ekki nóg með að hún eigi þetta afmæli í dag heldur er einnig nákvæmlega ár frá því að Dóri fékk sjokkið þegar ég sveiflaði jákvæðri óléttuprufu framan í hann. (já nei, það slettist ekkert...Glottandi)  Mér finnst eitthvað svo langt síðan þetta var en samt svo stutt.

Til hamingju allir nær og fjær sem fá gleði í hjarta við slíka niðurstöðu, ég man allavega að mitt litla hjarta var einhversstaðar í fimmta, sjötta eða jafnvel sjöunda himni.                            og er enn.


Heimsmeistarar

Skiptar skoðanir um úrslitaleik

Ég hef ekki mikinn áhuga á fótbolta en Dóri hefur alveg áhuga á við fjóra þannig að maður hefur ekki farið varhluta af (hmmm skrýtið orðatiltæki)  undangenginni heimsmeistarakeppni.

Þegar Evrópumeistarakeppnin var fyrir einhverjum árum þá slysaðist ég til þess að halda með Grikkjum (Sá flottan bol í fánalitunum þeirra.....).  Öllum að óvörum sigruðu þeir keppnina og spákonan Hafdís fæddist.  Í þessari keppni sagði fyrrnefnt "spákonuinnsæi" mér að Frakkar myndu sigra keppnina og reyndar leit alveg út fyrir það um tíma. Dóri var farin að huga að því að láta mig tippa reglulega fyrir háar fjárhæðir en svo skeði úrslitaleikurinn í gær.  Við söfnuðumst saman hjá foreldrum Dóra og eins og sjá má var fjölskyldan ekki alveg sameinuð um að halda með Frökkum. (Dóri svikari...)

Eftir leikinn er ég afar hamingjusöm að hafa ekki reynst sannspá.  Ég las nebbnilega í blöðunum um daginn um ýmis skrýtin dauðsföll í sambandi við heimsmeistarakeppnina og eitt af þeim átti rætur að rekja til manns sem fyrirfór sér af ótta við spádómsgáfu sína en hann hafði spáð rétt úrslitum einhvers leiksins.  Fegin er  ég að þurfa ekki að lifa við slíka byrði sem slíkir hæfileikar væru..... 


Þessi börn...

fyndin stúlka
Hún Emma Lilja er svo mikill grallari.  Um daginn kom hún
foreldrum sínum á óvart með því að setja upp skemmtilegt höfuðfat svo
þau ætluðu að fara á límingunum af hlátri.

Fleiri myndir

Öðruvísi fæða

Fyrsti grauturinn

Jæja, þá er maður komin í næsta skref með Emmu Lilju.  Eftir nokkurn umhugsunartíma, ráðleggingar frá uþb fjórtán reyndum mæðrum og ljósmóðurinni sjálfri er það nú opinbert að stúlkun síþyrsta er of grönn (eins og mamman, hahahahahahahah góður þessi....)  og er nú farin að fá graut.  og bara þriggja og hálfs mánaða...

Vísbendingarnar um hungur prinsessunnar voru nokkrar:

  • Eftir miðdegislúrinn var drukkið uþb kortér af hverjum klukkutíma fram á kvöld
  • Byrjað að vakna á næturnar til að fá að drekka (sem er alger nýlunda og mamman ekkert ánægð með)
  • Eftir að hafa drukkið stanslaust í hálftíma er samt skælt þegar tekin af brjósti.

 Þetta virðist stafa af lapþunnri móðurmjólkinni, vissi að ég hefði ekki átt að drekka svona mikla undanrennu síðustu árin.... Emma Lilja vill helst fá alveg mucho mikið af graut, henni finnst þetta svo gaman en ég er búin að vera að vinna mig upp í örfáa millilítra á síðustu dögum, spæja svo eftir einkennum af magakveisu eða óþoli við þessu nýja dóti í meltingarveginn en sé engin slík merki svo maður fer að auka þetta enn meira.  

Já Stúlkan mín er bara að vaxa upp úr því að vera ungabarn og í næstu stærð fyrir ofan, smábarn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Rósarimafjölskyldan...
Rósarimafjölskyldan...
Hvað er í gangi í Rósarimanum?

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband