Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Níu mánaða

Svei mér hvað tíminn líður.  Barnið hætt að vera ungabarn og orðið níu mánaða smábarn, með fullt af eigin skoðunum og skemmtilegheitum sem maður er að sjá og kynnast.  Er afar ánægð með að hafa ákveðið að taka orlof út desember þar sem fæðingarorlofi mínu er opinberlega lokið.  Sem sagt, ég er ekki í fæðingarorlofi lengur, heldur í vetrarfríi.  Er það ekki allt annað?

lítill jólasveinn

Og hvað getur maður þegar maður er níu mánaða?  Jú, það er ansi vinsælt að fá að æfa sig í að standa þó ekki séu sporin mörg ennþá.  Öryggið við að sitja er orðið mikið og lítið um veltur.  Maður segir baba og dada en ekki mama.  Maður segir ammamm þegar eitthvað mikið gott kemur í munninn.  Maður er sísvangur og borðar allt.  Enn fær maður mömmumjólk í litlum mæli, kvölds og morgna en stoðmjólkin er líka algert æði. Búbbarnir eru rosalega skemmtilegir og það er klappað og dansað við lögin þeirra.  Það er reyndar klappað í tíma og ótíma fyrir nánast öllu.  Það er yfirleitt voða gaman að vera til og mikið brosað og skellt uppúr en þegar á að þurrka slubb af nefi þá hefjast mikil öskur og undanbrögð.  Þegar tækifæri gefst til að vera á bleyjunni, er maður fljótur að kroppa límflipana upp og gera mömmu erfitt fyrir. Hárið er farið frá því að vera frekar dökkskollitað í rauðleitt og núna eiginlega frekar ljóst.  Augun orðin voða ljósblá og já maður er bara frekar sætur. 

Pabbi er orðin spenntur að fá að vera með frumburðinum heima í tvo mánuði en svo ætlar Korpukot að verða annað heimili stúlkunnar bláeygðu frá og með 1.mars.  Kunnum við þeim góðar þakkir fyrir.

Klappandi jólasveinn

Undirbúningur

gaman í baði

Já það er í nógu að snúast á litlu heimili fyrir jólin.  Þá er nú gott að slappa aðeins af og skella sér í bað.  Nú er búið að virkja aftur partýgenið í móðurinni góðu og er það víst fyrsta skrefið í átt að endurkomunni í hringiðu mannlífsins, þ.e. í atvinnulífið.  Þetta er allt að koma.  En guði sé lof fyrir að fá að eiga desember bara í ljúfheitunum.....

 


Loksins vitum við nafnið

Jæja, þá hefst herferðin "AðreynaaðhættaaðkallalitlafrændaTanaognotafrekarréttanafnið" sem er Bjarki Heiðar.  Ofsalega fallegt nafn á fallegum dreng.

Bjarki Heiðar

 

Innilega til hamingju með skírnina Anna Lilja, Elli og Bjarki Heiðar.

 


Tennur

Litla krúttið verður enn krúttlegra þegar tennurnar blómstra.  Hvernig er annað hægt en að vera skellihlæjandi allan daginn við svona krútti?  Sumir myndu tala um krútthroll í þessu sambandi. Smile

Tannabros

Nú er aðalsportið að sitja ein.  Duglega stelpan þurfti bara smá hvatningu og þá kom þetta loksins.  Nú er bara á fullu verið að reyna að þjálfa stúlkuna fyrir hæfileikakeppni barna, þ.e. fara með dýrahljóðin (ennþá bara fyndið fyrir henni), klappa saman höndum (allt að koma þar...) og svo að fara að veifa bless (hmmm svolítið langt í land þar)

Sitjandi ein 

 


Enn um skjaldbökur

Já, skjaldbakan góða veitir ungabarni yl á vetrardögum.  Engar áhyggjur þar af því hvort bíllinn drífi í vinnuna eða hvort  landið stefni í það óbyggilega.

Þegar maður fer að sofa á kvöldin þá er ansi gott að hafa eina svona uppáhalds til að halda í.

Vinir í fastasvefni

Svo fær maður þvílíkar áhyggjur af því að langamma Magga ætli að láta mann fórna uppáhaldinu til að geta betur klappað og sungið.

Klappað með langömmu Möggu

Já bara að allir væru svo heppnir að eiga svona góðan vin eins og Emma Lilja á í Torte skjaldbökunni sinni.

 

 

 

 

 


Um hálslangar skjaldbökur

Sumir eru alltaf orðnir svolítið þreyttir á kvöldin og þá er reynt að fá leyfi til að taka kríu í miðjum matartíma.  Mæður ná ekki alltaf að stoppa slíka lúra...

Matmálskría

Takið eftir appelsínugulu skjaldbökunni sem má varla hverfa úr augsýn stúlkunnar þessa dagana. Hausinn þjónaði þeim tilgangi að trekkja upp spiladós en þegar það klikkaði lafir hausinn bara langur.  Í samræmi við áðurnefndan "hálssjúkdóm" Emmu Lilju þá hefur skjaldbakan fengið nafnið Torte. (dregið af Torticollis syndróminu sem áður hefur verið rætt um hér...) Það er yfirleitt haldið vel utan um langan háls dýrsins og voða gott að nota restina sem kodda þegar verið er að hvíla sig eftir erfitt skrið um íbúðina.

Skriðið um með Torti

Framhalds að vænta.....


Litir

Litagleði

Sjá hvað sú litla tekur sig vel út í glímubúningnum sínum í litaglaðri leikmottunni sinni.  Hún er ofsalega kát þessa dagana enda er komin pínu von um að dagmæðravandamálið sé að leysast.  Sjáum til á næstu mánuðum með hvað verður áður en maður grætur af fögnuði og létti... 

Skelltum okkur á Mýrina í gær og mikið ofsalega var ég ánægð með hana.  Rosalega flott, fyndin, spennandi og kúl. Það eina sem ég var pínu ósátt við var þessi þungi kórsöngur sem ómaði um myndina og svo þessi sveitaímynd af Reykjavík sem gefin var. En kannski er það bara í hausnum á mér Pouty

   


Dugnaður

 Óskipulögð geymsla

Myndin til hliðar sýnir hvernig geymslan okkar leit út alveg þangað til í gær.   Bara furðulegt samansafn af ótrúlegustu munum frá árdaga búskaps okkar. (fyrir 3 árum) 

Eftir ótrúlegan dugnaðardag í gær (já við fórum í gömlu star wars búningana til að komast í tiltektarfílinginn) er þungu fargi af okkur létt (bókstaflega) og nokkur kíló af drasli farin á Sorpu og í Góða Hirðinn.  Sé alveg fyrir mér góða konu í Sómalíu gefa blómóttu mussunni minni nýtt tækifæri til lífs. 

Hér fyrir neðan má sjá hvernig geymslan lítur út eftir tiltekt.  Ótrúlegt pláss sem myndaðist, hefði bara varla trúað þessu.
cleanroom2


Á ferðinni

Uppáhalds farartækið
Litla snúllan er komin á það skemmtilega stig að ekki dugir lengur að
setja hana á leikteppi með dót og hún dundar sér í klukkutíma. 
Áður en maður veit af er hún búin að skríða undir húsgögn og farin að
fikta í sjónvarpsnúrum. Skemmtilegast finnst henni að
hlaupa um íbúðina á göngugrindinni sinni og svo að hoppa um eins og
brjálæðingur í hoppurólinni sinni.  Hún er farin að ná svo góðum
takti á göngugrindinni að hún kemst jafnvel áfram líka í stað þess að
fara bara afturábak eins og fyrstu vikurnar og svei mér þá ef maður
þarf ekki að fara að loka dyrum og fá barnalæsingar á skápa.  Á
þetta allt að gerast svona hratt?

Fleiri myndir

Nýjast

Litli nýi frændinn

Jæja, það vottar fyrir furðulegri tilfinningu þessa dagana sem ég neyðist til að kalla leti.  Ég hreinlega nenni engu.  Búin að vera dugleg í heimsóknum þessa vikuna en þess fyrir utan verður lítið úr verki.  Ekkert bloggað, engin fataskápatiltekt, engin geymsluskipulagning, engin bakstur og engin vandleg og djúp húsmóðurþrif.  Bara eitthvað dúllerí með Emmu og jú, ég var að byrja að lesa Draumalandið hans Andra Snæs (hmm er þetta rétt beygt?)  Verð ég heilaþveginn náttúruverndarsinni eftir nokkra daga?  Kemur í ljós...

En ég verð nú að fá að setja hér mynd af litla frænda hennar Emmu Lilju, þarf að ná mynd af þeim frændsystkinum saman fljótlega.  Hann blómstrar bara og maður er bara allur spenntur að heyra hvað drengurinn muni heita.  Set líka hér myndir af Emmu Lilju í uppblásna dæminu sem er að hjálpa henni að læra að sitja.  Hún kann þetta ekki alveg sjálf ennþá en þetta er allt að koma....


Fleiri myndir

« Fyrri síða | Næsta síða »

Bloggari

Rósarimafjölskyldan...
Rósarimafjölskyldan...
Hvað er í gangi í Rósarimanum?

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband