Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2006
8.4.2006 | 19:19
Hverjum líkist hún?
Eitt er það sem vekur forvitni ættingja þegar lítill ættingi fæðist er að fá að sjá hverjum barnið líkist. Fjölskyldan þyrpist að og allir þykjast sjá eitthvað í svip barnsins sem tilheyri hinni eða þessari fjölskyldu, ættarnefið eða augabrúnirnar hennar ömmu og þar fram eftir götunum.
Ég va ekki síður forvitin og hlakkaði mikið til að fá að sjá litlu dóttur mína til að stúdera svipinn. Raunin hefur svo orðið sú að fæstir sjá nokkurn svip með barninu og foreldrunum! Engu er líkara en því hafi verið rænt á deildinni...! Mikið og þykkt hárið á dótturinni var ólíkt skallanum á mér þegar ég var lítil, þó liturinn væri svipaður og augun og andlitsdrættir virðast alveg hennar eigin.
Það hefur þó komið upp úr krafsinu við að skoða barnamyndir af systrum pabbans að lillunni svipar mest til Rúndu, yngri systur Dóra. Það er svo sem ekki leiðum að líkjast enda báðar systurnar fallegar með eindæmum. Svo er líka gaman að lillan deilir strax áhugamáli með Rúndu en þeim finnst báðum ákfalega gott að sofa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2006 | 00:19
Lítið fólk stækkar hratt
Það var alveg fyndið hvað hann Bjarni litli, eins og hálfs árs sonur Súsíar systur, sem er búin að vera litla barnið í familíunni lengi, var allt í einu orðin stór. Hann sannaði kenninguna að allir hlutir eru afstæðir. Borinn saman við litlu frænku sína, sem honum finnst enn nokkuð merkileg og vill gjarnan pota í, er hann bara frekar stór drengur. Alltaf samt jafn krúttílegur....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.4.2006 | 15:30
Smá byrjunarörðugleikar
Ég átti í einhverjum vandræðum með að setja inn myndir fyrst en mér sýnist það vera komið núna þannig að ég tek dugnaðarkast fljótlega í því að hlaða inn myndum.
Maður verður aðeins líka að prófa sig áfram...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2006 | 20:12
Fyrsta skráning
Verður maður ekki að nýta svona bloggheima sem mbl er að bjóða hér uppá, sérstkalega þegar maður er nýbúin að eignast litla stúlku og langar að deila myndum af henni með ættingjum og vinum?
Jú ég held það barasta þannig að here goes.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2006 | 18:45
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar