21.1.2007 | 00:13
Matur
Jæja, Emma Lilja er nú farin að venjast því að móðir hennar láti sig hverfa megnið af deginum og hún fái að skemmta sér með pabba sínum í staðinn. Allt að detta í fastar skorður. Skorðurnar ná nú ekki lengra fram en rúman mánuð í viðbót en samt....
Litla matargatið er alveg með eindæmum lystugt, reyndar svo að það virðist enginn botn vera í spilinu. Hún borðar allt og eiginlega þangað til hún þetta skilar sér upp aftur. Hér eru nokkrar myndir af dömunni við uppáhaldsiðjuna sína.
Hér er verið að háma í sig brauð með smjöri. Vandamálið liggur oft í því að gripið er svo fast í brauðbitann að það þarf að kroppa hann úr krepptum hnefanum til að koma í matargatið. Fínhreyfingarnar alveg í æfingu.
Oft er gott að troða bara sem mest af hnefanum upp í munninn til að ná örugglega öll matarkyns sem þar gæti leynst.
Ahhhhhh svo er bara að tyggja og biðja svo mömmu um meiiiiiiiiiiiira.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ha ha ha, hún er svo mikill snilli. Úff hvað hún er mikil dúlla með svona vandvirkan svip á fyrstu myndinni, langar að fara inn í myndina og knúsa hana.
Hún er bestust
Luv
Anna Lilja (bestasta frænkan) hehe.
anna lilja (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 00:43
Bestu kveðjur frá Skálaheiðarpakkinu. Endilega gefa henni meira smjör það bætir, hressir og kætir...einnig ostur ómissandi
gaman að sjá hvað hún er orðin stór.
Gugga (IP-tala skráð) 23.1.2007 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.